Skýrsluhald

Skýrsluhald á vegum fjárræktarfélaga er grunnur að upplýsingaöflun vegna ræktunarstarfs í sauðfjárrækt í landinu. Skýrsluhaldið er um leið besta tækið sem

Skýrsluhald

Skýrsluhald á vegum fjárræktarfélaga er grunnur að upplýsingaöflun vegna ræktunarstarfs í sauðfjárrækt í landinu. Skýrsluhaldið er um leið besta tækið sem bændur hafa til að rækta sinn stofn og hafa sem mestan hag af honum. Sérstaða Íslendinga er mikil þegar kemur skýrsluhaldi í sauðfé því óvíða er það jafn almennt og hérlendis.

Skil á skýrsluhaldi til uppgjörs Bændasamtakanna fara fram tvisvar á ári.  Miðað er við að lokaskiladagur á vorupplýsingum sé 20. ágúst og haustupplýsingum 1. febrúar, sem jafnframt er lokaskiladagur til að standast ákvæði reglugerðar um gæðastýringu í sauðfjárrækt. Meirihluti sauðfjárbænda landsins skilar skýrsluhaldinu sínu í gegnum vefforritið fjárvís.is, en aðrir skila bókum sem skráðar eru inn í það kerfi.

Leiðbeiningar um notkun fjárvís.is 

 

Inni á vef Bændasamtaka Íslands má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar úr hinu sameiginlega skýrsluhaldi landsins.

Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478