Að mörgu er að hyggja þegar kemur að kynbótastarfi í sauðfjárrækt og er þar sterkasta hjálpartækið gott skýrsluhald.
Kynbætur í sauðfjárrækt miða að því f.o.f. að auka frjósemi og vænleika, en einnig að bæta kjötgæði og ullargæði.
Kynbótastarfið er að miklu leiti grundvallað á BLUP-einkunnum sem reiknaðar eru á hverju vori og eru grundvallaðar á öllum nýtanlegum upplýsingum úr skýrsluhaldinu, hér má finna kynbótaeinkunnir sæðingastöðvahrútanna eins og þær eru nú, en inni á fjárvís.is má einnig finna þær ásamt einkunnum fyrir félagshrúta og ær hjá hverjum og einum skýrsluhaldara.
Á vef Bændasamtakanna má nú finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um nýjustu kynbótaeinkunnirnar.
Þegar verið er að setja sér markmið með kynbótum getur verið fróðlegt að reikna út ávinning þeirra með því að meta verðmæti sláturlambanna. Uppfært í janúar 2012. Verðmæti sláturlamba
Í mars 2012 voru birtar haldgóðar skýringar á útreikningum á einkunnum í skýrsluhaldi sem lesa má hér.
Þar sem Grábotni 06-833 frá Vogum II í Mývatnssveit hefur notið feikna vinsælda í ræktunarstarfinu hefur verið tekið saman smá yfirlit um hann og móður hans.