Umsjónarmaður sauðfjárræktarsviðs er María Svanþrúður Jónsdóttir. Aðrir starfsmenn eru Sigurður Þór Guðmundsson, Ólafur Geir Vagnsson og Ari Teitsson.
Helstu verkefni ráðgjafaþjónustunar á sviði sauðfjárræktar er starfsemi er varðar skýrsluhald í sauðfjárrækt og uppgjör fjárræktarfélaganna. Ýmist með aðstoð við notendur skýrsluhaldskerfis hvort sem notað er fjarvis.is eða skýrslum skilað í bók. Veitt er ráðgjöf við val líflamba með túlkun kynbótamats, stigun og ómmælingu lamba. Þá eru gerðar upp afkvæmarannsóknir á bæjum á hverju hausti sem hafa tilskilin lágmarks fjölda lamba og hrúta til uppgjörs. Ýmis konar ráðgjöf er í boði varðandi fóðrun, beit og meðferð sláturlamba. Þá eru gerðar rekstaráætlanir fyrir sauðfjárbú og ýmiskonar úttektir sem lúta að rekstri sauðfjárbúa.
Á starfssvæðinu voru árið 2010 starfrækt 26 fjárræktarfélög með 300 virkum félagsmönnum og 52.400 fullorðnum ám og 12.000 veturgömlum.