Beit

Beit mjólkurkúnna :o) (miðvikudagur, 03 júní 2009) Með hækkandi sól og vor í lofti þarf m.a. að fara að huga að sumarbeit

Beit

Beit mjólkurkúnna :o)
(miðvikudagur, 03 júní 2009)

grur08-smriMeð hækkandi sól og vor í lofti þarf m.a. að fara að huga að sumarbeit mjólkurkúnna.  Beit heldur landinu opnu, við nýtum auðlindir landsins með ódýrum hætti auk þess sem gott er fyrir skepnuna að vera úti og hreyfa sig.  En það þarf að hafa fyrir beitinni og aðstæður eru misjafnar milli búa þar sem hver og einn verður að meta beitina út frá eigin forsendum. 

 Gott getur verið að horfa til beitarinnar sem þrískipta; vor- eða snemmsumars, miðsumars og loks haustbeit og setja upp beitaráætlun fyrir búið allt tímabilið.  Það þarf að vega og meta hvaða beit hentar hverju sinni í samræmi við önnur verk búsins á hverjum tíma, reyndar er mjög gott að hafa vörður á verkunum. 

Séu aðstæður fyrir hendi er gott að byrja á að koma kúnum út í gerði/rétt við fjósið til að viðra sig snemma vors.  Þumalfingurviðmið grashæðar þegar sleppa skal gripum í beitarhólf er um 10-12 cm (norskar tilraunir) en að vori má horfa fram hjá þessu viðmiði þar sem sprettan er í mjög örum fasa svo beitargrasið vaxi ekki „fram úr sér” á þessum tíma.  Framboð beitar er meira með aukinni hæð, með meiri þéttleika í sverðinum og færri gripum á flatareiningu.  Á móti kemur að trénið eykst með aukinni sprettu, hlutfall blaðvaxtar minnkar og nýtingin versnar.  Fyrir vikið er ekki æskilegt að grashæðin fari upp fyrir 20 cm (norskar tilraunir).  Hér gildir að finna hinn gullna meðalveg eins og í svo mörgu.  

Beitarnýtingin fylgir oft á tíðum uppskerunni framan af en dalar svo eftir því sem tíminn líður, grösin þroskast.  Sé borið á beitarhólf milli beitartímabila má að einhverju leyti fá fram blaðríkari – og næringarríkari – vöxt hverju sinni.  Bíða skal með að beita stykki sem borið hefur verið á í a.m.k. 14 daga.  Miðsumarbeitin er hvað viðkvæmust og til að koma á móts við trygga og góða beit það tímabil henta  sumaryrki grænfóðurs, s.s. sumarrýgresi og sumarrepja.  Hafa ber í hug að þau spretta hratt (skila beit eftir 60-70 daga) og spretta fljótt úr sér með tilheyrandi falli fóðurgildisins.  Varast skal að hafa stykkið of stórt með slíkum gróðri auk þess að fara ekki of nískulega með beitarupphafið.  Þá má líka spila á slátt og endurvöxt, jafnvel beita endurtekið (gripirnir mishrifnir af því).  Vetraryrki grænfóðurs koma að miklu gagni að hausti, þau lengja beitartímann og auka gæði hans til muna.

Lystugleiki vallarfoxgrass er ótvíræður, fjölært rýgresi er talið slá því við en þar er að fást við meiri óvissu í ræktun.  Þá hefur smárablöndun með beitargróðri aukið upptöku á beit en belgjurtirnar eru bæði prótein- og steinefnaríkari en grastegundirnar.  

Að sjálfsögðu ber að gefa kúnum hey með beit að vori og hausti til að mýkja fóðurbreytingarnar, að lágmarki hálfan mánuð í sitt hvorn enda beitarímans.  Heygjöf með beit hlúir að vambarstarfseminni og gott er að gefa með allan tímann ef næg hey eru til staðar á búinu.  Það má heldur ekki gleyma að kýrnar þurfa að drekka mikið og oft og nauðsynlegt fyrir þær að hafa gott aðgengi að góðu drykkjarvatni, alltaf, og að þær þurfi ekki um langan veg að fara til að nálgast það. 

Nýtingarmöguleikar beitilandsins eru margir; randbeit, hólfabeit eða víðáttubeit.  Með góðri skipulagningu má bjóða kúnum upp á samfellda, prótein- og orkuríka beit allt beitartímabilið og spara kjarnfóðurgjöf.  Enn eitt þumalfingurviðmið segir að af slíkri gæðabeit á kýrin hæglega að geta skilað 20 kg mjólkur.  Hafa ber í huga einstaklingsmun gripanna sem er svo sannarlega til staðar.  Þá geta hegðan og athafnir kúnna gefið vísbendingar um eitt og annað: 

# Ánægð, södd og sæl kýr liggur gjarnan með hausinn fram og örlítið á ská, oft með annan framfótinn teygðan fram.
# Haltar kýr / aumar í fótum liggja enn meira á hliðinni, höfuðið gjarnan lágreist.
# Södd kýr er með góða vambarfylli.
# Ef grópin bak við rifbeinin vinstra megin er áberandi (meira en handarbreidd) er vömbin ekki nógu vel fyllt – getur verið að beitin sé ekki næg og/eða að aðgegni vatns sé ábótavant.
# Kýr sem sýnir frávik í hegðun (sker sig úr hópnum) er að reyna að „segja frá” að eitthvað sé að !!! 

Setjum okkur markmið fyrir beitarskipulag sumarsins – þau þurfa að vera viðráðanleg, sveigjanleg og, umfram allt, framkvæmanleg !!!  ☺ 
Apr./maí ´09 – SB  

Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478