
Jónatan Hermannsson og Þórdís Kristjánsdóttir skoða korntilraunir á Möðruvöllum ásamt Guðmundi H. Gunnarssyni ráðunaut
mynd: Þóroddur Sveinsson
Búnaðarsamband Eyjafjarðar ásamt Búnaðarsamböndum Suður- og Norður-Þingeyinga reka rannsóknabúið á Möðruvöllum í Hörgárdal í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands. Á Möðruvöllum hefur verið rekin tilraunastöð í landbúnaði síðan 1974. Stöðin var í upphafi rekin af Rannsóknastofnun landbúnaðarins (Rala) en um skeið af Rækunarfélagi Norðurlands. Seinni ár hefur starfssemin verið rekin undir merkjum Landbúnaðarháskóla Íslands. Á vormánuðum árið 2009 tóku búnaðaramböndin á Norðausturlandi við búrekstri á staðnum og keyptu bústofn og vélar búsins en leigja jörðina skv. samstarfssamningi við LbhÍ. Búreksturinn er á nafni Möðruvalla ehf, stjórnarformaður félagsins er Sigurgeir Hreinsson formaður BSE og framkvæmdastjóri er Ingvar Björnsson ráðunautur. Markmiðið með aðkomu búnaðarsambandanna var að renna styrkari stoðum undir rannsóknastarfssemina á staðnum og tryggja áframhald landbúnaðarrannsókna á Norðurlandi.
Tilraunastöðin á Möðruvöllum leggur áherslu á jarðræktarrannsóknir og hagnýtar búrekstrarathuganir. Tilraunastjóri á Möðruvöllum er Þóroddur Sveinsson. Landkostir Möðruvalla til tilrauna í jarðrækt eru einstakir þar sem saman fer mikill fjölbreytileiki í jarðvegsgerð og einstaklega hagstætt veðurfar til ræktunar. Meðal núverandi tilrauna og athugana á Möðurvöllum má nefna yrkjatilraunir í kornrækt, stofna og tegundaprófanir í grasrækt og belgjurtarækt, tilraunir með nýtingu búfjáráburðar og áburðarsvörun túna, rannsóknir á hauggasvinnslu og vetrarþolsprófanir. Þá má nefna að á Möðruvöllum fer fram stofnútsæðisræktun kartaflna í samstarfi við Matvælastofnun.
Búið á Möðruvöllum er kúabú með um 40 árskúm og tilfallandi nautaeldi. Bústjórar á búinu eru mæðginin Ragnhildur Kristjánsdóttir og Hjálmar Jóhannsson. Land jarðarinnar er mikið og er hluti þess leigður nágrannabændum til slægna og kornræktar. Allt orkufóður búsins er heimaræktað og eru aðstæður til kornræktar á Möðruvöllum eins og best gerist á Íslandi. Í búrekstrinum er stefnt að því að prófa nýjungar í jarðrækt og fóðuröflun og má nefna í því samhengi velheppnaða ræktun á vetrarhveiti og olíujurtum.
Eitt af megin markmiðunum með aðkomu búnaðarsambandanna að rekstri búsins er að skapa vettvang fyrir bændur á svæðinu til að kynna sér nýjustu rannsóknir i jarðrækt og um leið að flýta fyrir hagnýtingu þeirra. Framtíðarsýnin er sú að Möðruvellir verði heimastaður bænda á Norðausturlandi sem þeir geti heimsótt við sérstök tækifæri og kynnt sér nýjungar í jarðrækt og fóðuröflun og fræðst um það sem efst er á baugi í rannsóknum hverju sinni.