Lög Búnaðarsambands Eyjafjarðar
1. gr.
Félagið heitir Búnaðarsamband Eyjafjarðar. Félagssvæði þess nær yfir öll sveitarfélög við Eyjafjörð. Aðsetur þess og varnaþing er heimili formanns hverju sinni, eða formlegt aðsetur þar sem miðstöð starfsemi þess er, samkvæmt nánari ákvörðun. Sambandið starfar bæði á faglegum og stéttarlegum grunni.
2. gr.
Félagar geta orðið þeir einstaklingar og lögaðilar sem hafa tekjur af landbúnaði og stunda búrekstur í atvinnuskyni. Aðild skal óháð því hvort þeir stunda búrekstur í eigin nafni eða annarra. Undir búrekstur fellur hvers konar búfjárrækt, jarðrækt, skógrækt, garðrækt og ylrækt. Einnig eftirfarandi starfsemi fari hún fram á lögbýlum: Eldi og veiðar á vatnafiski, nýting hlunninda, framleiðsla og þjónusta. Allir félagar skulu hafa sömu réttindi óháð formi á félagsaðild.
3. gr.
Tilgangur félagsins er:
- að annast lögboðna starfsemi búnaðarsambanda hverju sinni.
- að vera aðili að Bændasamtökum Íslands.
- að vera málsvari félagsmanna varðandi búrekstur.
- að vinna að framförum á sviði landbúnaðar.
- að vinna að bættum hag félagsmanna.
- að gæta hagsmuna félagsmanna í markaðs- og kjaramálum.
4. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því:
- að hafa í sinni þjónustu starfsmenn með sérþekkingu á þeim sviðum sem áhersla er lögð á af félaginu.
- að hafa yfir að ráða húsnæði og nauðsynlegum tækjum til starfseminnar.
- að hafa yfir að ráða og afla nægjanlegs fjármagns til þeirrar starfsemi sem ákveðið er að reka.
5. gr.
Aðalfund skal halda árlega fyrir apríllok. Hann skal opinn öllum félagsmönnum á svæði Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Aðalfund skal boða með dreifibréfi eða á annan venjubundinn hátt eigi síðar en 30 dögum fyrir fundardag og aftur a.m.k. viku fyrir fund, þannig að tryggt sé að öllum félagsmönnum sé kunnugt um hann. Málum sem leggja á fyrir aðalfund skal komið til stjórnar a.m.k. 10 dögum fyrir fund. Aðalfundur starfar í búgreinanefndum (áhugasviðum) og geta menn valið sér setu þar eftir áhuga.
Þær nefndir leggja síðan mál fyrir sameinaðan fund til afgreiðslu. Á fundinum skulu liggja frammi skýrslur stjórnar, ráðunauta og búgreinaráða. Aukafund er skylt að halda með hæfilegum fyrirvara fyrir Búnaðarþing.
6. gr.
Aðalfundur félagsins kýs 5 manna stjórn. Kjörtímabil eru 3 ár. Úr stjórninni skulu ganga tveir menn árlega í tvö ár en einn maður þriðja árið. Aðalfundur kýs 2 varamenn árlega og skal sá er fleiri atkvæði hlýtur vera fyrsti varamaður. Þá kýs aðalfundur árlega formann og varaformann úr hópi stjórnarmanna. Árlega skal kjósa 2 skoðunarmenn reikninga og varamenn þeirra.
Stjórnir búgreinaráða skulu skipaðar þremur mönnum og tveimur til vara, kosnum á ársfundi ráðsins. Í stjórn skulu vera formaður, varaformaður og ritari og skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. Kjörtímabil stjórnar er þrjú ár og gengur einn úr stjórn á ári, en varamenn skulu kosnir árlega. Á ársfundi ráðsins skal einnig kjósa fulltrúa og varamenn þeirra á aðalfund landssambands viðkomandi búgreinafélags eftir settum reglum landssambandsins. Kosningarétt hafa þeir sem stunda viðkomandi búgrein og eru skráðir félagar í B.S.E.
Ársfundir búgreinaráða skulu haldnir fyrir aðalfund B.S.E. og eigi síðar en 5. apríl ár hvert. Skulu búgreinaráð vera stjórn félagsins til stuðnings er fjallað er um mál viðkomandi greinar og sitja aðalfund félagsins. Ráðin geta óskað eftir fundi með stjórn félagsins ef þau telja ástæðu til og er stjórn skylt að verða við slíkum óskum. Búgreinaráð geta boðað til almennra funda eftir því sem tilefni er til. Búgreinaráð geta ekki skuldbundið félagið fjárhagslega eða faglega.
7. gr.
Á aðalfundi skulu liggja fyrir endurskoðaðir reikningar félagsins til afgreiðslu og gengið skal frá fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Skal þar marka verkefni ársins, móta stefnu félagsins, ákveða félaginu tekjustofna innan ramma þeirra laga er um það gilda og ákveða árgjöld. Árgjald skal byggt upp sem félagsgjald einstaklings og til viðbótar því árgjald jarðar eða rekstrar, eftir því sem þörf er hverju sinni miðað við samþykkt fjárhagsáætlunar. Einnig skal setja gjaldskrá félagsins fyrir selda þjónustu. Á aðalfundi skal liggja fyrir félagaskrá og aðeins þeir félagar eiga rétt á fundarsetu með fullum réttindum, sem þá eru skuldlausir við félagið.
8. gr.
Aðalfundi félagsins má ekki slíta fyrr en gengið hefur verið frá kosningu fulltrúa á Búnaðarþing eftir þeim reglum sem um getur í samþykktum Bændasamtaka Íslands, II. kafla. Sé félagið aðili að landssamtökum búgreinafélaga skal aðalfundur einnig kjósa fulltrúa til setu á landsfundum búgreinafélaga eftir þeim reglum sem gilda hverju sinni.
9. gr.
Aukafund skal kalla saman í félaginu ef 30% félagsmanna óska þess skriflega. Skal þar geta um tilefni aukafundar. Boðun aukafundar skal fara fram á sama hátt og boðun aðalfundar og telst hann löglegur ef löglega er til hans boðað.
10. gr.
Stjórn félagsins annast allar framkvæmdir og rekstur félagsins á milli aðalfunda. Hún má ekki skuldbinda félagið til langframa á neinn hátt umfram það er aðalfundur ákveður eða veðsetja eigur þess.
11. gr.
Félagið hættir störfum og leysist upp, sé það samþykkt á tveimur aðalfundum í röð af meirihluta félagsmanna á félagssvæðinu og ráðstafar þá síðari fundurinn eignum þess ef einhverjar eru.
12. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi ef 2/3 hlutar mættra félaga samþykkja og hafi breytinga verið getið í fundarboði.
Lögin þannig samþykkt á framhaldsaðalfundi 30.nóvember 1996.
6. gr. breytt á aðalfundi 2003.