525. stjórnarfundur Búgarðs Ráðgjafaþjónstu haldinn 14. desember 2011. Mætt voru Sigurgeir Hreinsson, Guðmundur Bjarnason, Þórarinn Pétursson, Helgi Þór Helgason, Gunnhildur Gylfadóttir, Jón Benediktsson formaður BSSÞ auk framkvæmdastjóra. Einar Ófeigur Björnsson boðaði forföll.
Bréf frá Eyjafjarðarsveit um eyðingu dýraleifa.
Sveitarstjóri sendi tölvupóst 13. desember sl. og óskaði eftir áliti Búgarðs Ráðgjafaþjónustu um fyrirhugaða gjaldskrá Eyjafjarðarsveitar vegna eyðingu dýraleifa. Í fyrirliggjandi gögnum er lagt til að búfjáreigendur greiði ákveðið gjald pr. grip samkvæmt forðagæsluskýrslu. Í gögnunum kemur fram fyrirhuguð gjaldtaka fyrir hverja búfjártegund. Fljótt á litið virðist gjaldtöku stillt í hóf en stjórninni hefur ekki gefist ráðrúm til að meta hvort skipting milli búfjártegunda er réttlát eða eðlileg. Stjórnarmenn eru sammála um nauðsyn þess að varanleg og hagkvæmari lausn á förgun dýraleifa verði fundin í framtíðinni.
Endurskoðun á skipulagi ráðgjafaþjónustu.
Farið var yfir umræður á síðasta formannafundi búnaðarsambandanna sem snérist um endurskoðun á skipulagi ráðgjafaþjónustunnar í landinu. BÍ fékk til starfa danskan ráðgjafa sem leggur til að starfrækt verði ein ráðgjafaþjónusta á landsvísu. Milliþinganefnd er að störfum á vegum Bændasamtaka Íslands og mun hún væntanlega leggja fram tillögur fyrir næsta Búnaðarþing. Stjórn Búgarðs vill stefna að því að halda opin fund og kynna þessi mál þegar tillögur nefndarinnar liggja fyrir.
Ýmis mál rædd án þess að ástæða þyki að bóka sérstaklega um þau.
Fundi slitið um 15:40 / VS