Stjórnarfundur BSE og Búgarðs ráðgjafaþjónustu haldinn í Búgarði 13. október 2011 kl 11:00. Mætt eru Sigurgeir Hreinsson, Þórarinn Pétursson, Guðmundur Bjarnason, Gunnhildur Gylfadóttir og Vignir Sigurðsson framkvæmdastjóri. Helgi Þór Helgason boðaði forföll.
Byggðir Eyjafjarðar
Farið yfir stöðuna. Ekki náðist að mynda alla bæi í sumar aðallega sökum þess að veðurfar var ekki hagstætt til myndatöku seinni parts sumars þegar myndasmiðir fóru af stað. Tilboða hefur verið óskað í myndatöku af ábúendum og var fjórum ljósmyndastofum boðið að senda inn tilboð. Tilboðum skal skilað 1. nóvember og skal myndatöku lokið 1. febrúar 2012. Guðmundur Steindórsson og Vignir stefna á að ræða við Ásprent um prentun og kanna hvort hægt er að ná hagstæðum samningum við þá. Stjórnarmenn sammála um að mikilvægt sé að bókin nái næsta jólabókaflóði og er stefnt á útgáfu ekki síðar en 1. október 2012.
Landbúnaðarsýning
Stjórn sammála um að stefna að landbúnaðarsýningu í tilefni af 80 ára afmæli BSE á næsta ári. Horft er til helgarinnar 18.-19. ágúst. Kannski spurning um að byrja á föstudegi. Ákveðið að Vignir tali við forsvarsmenn reiðhallarinnar á Akureyri um hvort hægt var að fá höllina fyrir þessa sýningu.
Vigni falið að hafa samband við stærstu fyrirtækin í landbúnaðargeiranum á svæðinu, búvélasala, afurðafyrirtæki og fóðursala og láta vita af því að þetta standi til. Stefnt á að ráða sýningarstjóra upp úr áramótum.
Fundur Búgarðs ráðgjafaþjónustu hófst kl. 13:00 og inn á fund komu Jón Benediktsson formaður BSSÞ og Einar Ófeigur Björnsson formaður BSNÞ.
Klaufskurðarbás
Nýr klaufskurðarmaður var ráðinn í lok apríl. Sá heitir Helgi Jóhannesson og býr í Stóra-Dunhaga í Hörgársveit. Langur biðlisti hafði myndast enda ekki starfandi klaufskurðarmaður hjá okkur í allmarga mánuði. Helgi vann við klaufskurðinn út maí mánuð en var að mestu við önnur störf í sumar. Hann byrjaði aftur 25. ágúst og hefur sinnt þessu nær óslitið síðan. Um þetta var samið þegar Helgi var ráðinn að hann gæti að mestu leyti sinnt öðrum störfum yfir sumarið þ.e. júní, júlí og ágúst. Nú er búið að hreinsa upp biðlistann.
Rekstur Búgarðs
Farið yfir rekstur BSE fyrstu 8 mánuði árins. Rekstur nokkuð í samræmi við áætlanir. Tekjur svipaðar og á sama tíma í fyrra en gjöld heldur hærri. Mestu munar um hækkun launaliðar um tæpar 3 milljónir sem skýrist af almennum launahækkunum og er það í samræmi við áætlanir.
Rekstur Möðruvalla ehf.
Ingvar Björnsson ráðunautur og framkvæmdastjóri Möðruvalla ehf. kom inn á fund og fór yfir rekstur síðustu mánaða og framtíðarhorfur. Leigusamningur við LbhÍ rennur út næsta vor en þá þarf að segja honum upp um áramót annars framlengist hann um eitt ár. Reksturinn hefur að mörgu leyti gengið ágætlega og þetta fyrirkomulag að leggja til land og vinnu til tilraunastöðvarinnar sem leigugreiðslu hefur gengið vel. Peningalega hefur reksturinn þó verið í járnum og hefur BSE lagt félaginu til 5 milljónir auk þess sem ekkert hefur fengist uppí vinnu framkvæmdastjóra. Skuld félagsins við Búnaðarsamband Eyjafjarðar er nú komin í tæplega 8 milljónir auk hlutafjárins sem sett var í félagið upphaflega. Á móti hefur skuld félagsins við LBHÍ lækkað um 6,1 milljón við síðustu áramót. Í upphafi árs var skýrt tekið fram af stjórn BSE að ekki kæmi til greina að leggja meira fé í félagið og um nokkurt skeið hefur verið ljóst að reksturinn gæti ekki gengið áfram í óbreyttri mynd ef ekki yrði viðsnúningur. Reksturinn hefur gengið án framlaga frá BSE það sem af er árinu en afgangurinn mun ekki nægja til að gera upp áramótagreiðslu til LBHÍ.
Stjórn er sammála um leggja til við stjórn Möðruvalla ehf. að segja samningnum upp í vor. Megin tilgangurinn með aðkomu búnaðarsambandanna var að standa vörð um tilraunastöðina og starfssemina á Möðruvöllum. Möguleikar búnaðarsambandanna til að taka fjárhagslega áhættu í þessum rekstri eru hins vegar mjög takmarkaðir. Vigni og Ingvari falið að ræða við Ágúst Sigurðsson rektor LbhÍ um framhaldið. Ýmsum möguleikum velt upp t.d. að leigja einstaklingum jörðina til áframhaldandi búrekstrar á líkum nótum og samningurinn við Möðruvelli ehf. kveður á um. Ábúendur hefðu þá skilgreindar skyldur við tilraunastöðina sem gætu komið í stað leigugreiðslna. Það er þó vissulega LbhÍ að ákveða framhaldið en stjórn Búgarðs er reiðubúin að koma að málinu og aðstoða eftir megni við að finna bestu lausn.
Fundi slitið 15:30 / VS