523. stjórnarfundur BSE/Búgarðs haldinn í Búgarði fimmtudaginn 7. júlí 2011 kl. 11:00
Mættir voru Gunnhildur Gylfadóttir, Þórarinn Pétursson, Guðmundur Bjarnarson, Sigurgeir Hreinsson og Helgi Þór Helgason auk framkvæmdastjóra.
Afgreiðsla tillagna frá aðalfundi BSE
-
Jarðalög: Stefnt á að boða til fundar í haust.
-
Aðild að ESB: Senda til BÍ.
-
Samstarfssamningur BSE, BSSÞ og BSNÞ: Frágengið.
-
Byggðir Eyjafjarðar: Í vinnslu. Ritnefnd hefur hafið störf.
-
Fjárhagsáætlun BSE:
-
Dýralækningar í dreifðum byggðum: Senda á BÍ og Sjárvarútvegs-og landbúnaðarráðuneytið.
-
Förgun hræja og sláturúrgangs: Þetta er í þróun hjá hverju sveitarfélagi fyrir sig en mislangt komið. Ákveðið að senda tillöguna á sveitarfélögin.
-
Orku- og næringarefnanotkun í landbúnaði: Senda til Bændasamtaka Íslands og ráðuneytis landbúnaðarmála.
Byggðir Eyjafjarðar
Guðmundur Steindórsson kom inn á fundinn. Verið að undirbúa myndatöku og búið að ræða við nokkra ljósmyndara. Búið að senda út “viðvörun” til bænda í Fréttum og fróðleik um að myndataka fari að mestu fram í sumar. Eftir er að semja um greiðslur til myndatökumanna. Stefnt á að greiða fyrir akstur og fast verð á mynd. Gróf kostnaðaráætlun við útgáfu bókarinnar hljóðar uppá 20 milljónir. Búið er að óska eftir styrk frá KEA og hefur fengist vilyrði fyrir því. Stefnt á að senda út styrkbeiðnir til nokkurra af stærstu fyrirtækjunum senda tengjast landbúnaði á svæðinu.
Styrkumsókn frá Maturinn vegna sýningar á Akureyri
Stjórn BSE samþykkir að styrkja sýninguna um 100.000.- Framkvæmdastjóri hefur samband við starfsmann sýningarstjórnar og kemur þessu á framfæri.
BSE afmæli á næsta ári
Ákveðið að skoða með grundvöll fyrir landbúnaðarsýningu í Eyjafirði á næsta ári. Stefnt á að framvæmdastjóri og formaður hafi einhverjar upplýsingar fyrir næsta fund.
Einar Ófeigur formaður BSNÞ og Jón Ben. formaður BSSÞ komu inn á fund um kl. 13:00
Bændahátíð/uppskeruhátíð
Ákveðið að kanna hvort áhugi er fyrir því að halda sameiginlega uppskeruhátíð bænda á Norðausturlandi.
Fjárhagsstaða BSE/Búgarðs fyrri hluta árs
Fjárhagsstaða í samræmi við áætlanir og staðan svipuð og hún var fyrstu 4 mánuðina 2010.
Metan úr héraði
Ósk frá Metan úr héraði ehf. um stuðningsyfirlýsingu við fyrirhugaðar áætlanir um að reisa metan verksmiðju á Akureyri. Stjórn Búgarðs fagnar áhuga manna á metanvinnslu og viðleitni til að auka sjálfbærni íslensk landbúnaðar. Stórn Búgarðs hvetur Metan úr héraði ehf. til að halda áfram sínum athugunum á metanvinnslu. Jafnframt hvetur stjórnin félagið til að leita samstarfs við aðra aðila á svæðinu sem eru að vinna að svipuðum verkefnum.
Skuldamál bænda
Farið yfir skuldamál bænda og málin rædd fram og aftur. Svo virðist sem fleir bankar en Arion banki séu farnir að vinna í skuldamálum bænda. Landsbankinn vinnur að endurútreikningi og sama virðist vera í gangi hjá Íslandsbanka. Lítið að frétta af málum hjá Sparisjóðunum.
Möðruvellir ehf.
Framleiðslan gengur nokkuð vel og gert er ráð fyrir að umframmjólk verði sem svarar til ca. 2,5 mánaða framleiðslu. Vinnukraftur er í lágmarki en gengur þó. Fjárhagur er þokkalegur en samt ekki líkur á að hægt verði að greiða upp í skuld BSE á næstu mánuðum.
Tíðarfar og viðbrögð vegna kals og hugsanlegs heyskorts á svæðinu
Ingvar greindi frá því að ráðunautar Búgarðs væru búnir að fara á 80 bæi og kal er frá 20 – 75% og að jafnaði um 35-40%. Áætla má að þetta séu um 1200 ha. Vitað er til að búið er að endurækta um 400 ha. Alvarlegt kal er í Skíðadal, Árskógsströnd, Fnjóskadal, Kinn, Mývatnssveit og víðar. Hefur ekki miklar áhyggjur af Eyjafirðinum þar sem menn náðu að endurrækta kalin tún snemma í vor. Meiri spurning hvernig staðan verður hjá all mörgum sauðfjárbændum í Þingeyjarsýslum. Ákveðið að senda yfirlit til Bjargráðasjóðs um stöðuna á svæðinu og hvatningu til sjóðins um að leita eftir aukafjármunum til að bæta tjón þeirra bænda sem verst eru settir.
Fundi slitið um 15:30 / VS