522. stjórnarfundur BSE haldinn í Búgarði 4. apríl 2011 kl 11:00. Mættir voru Þórarinn Pétursson, Sigurgeir B. Hreinsson, Árni Arnsteinsson, Helgi Þór Helgason, Guðmundur Bjarnason auk framkvæmdastjóra.
Kaup á skuldabréfum
Framkvæmdastjóri hefur gengið frá kaupum á ríkistryggðum skuldabréfum hjá Íslenskum verðbréfum hf.
2 millj Sparisafn IV – stutt ríkiskuldabréf
2,5 millj. Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa
2,5 millj. Ríkisskuldabréfasjóður ÍV
Bréf frá Bændasamtökum.
Mál frá búnaðarþingi. Tvö mál send til stjórnar BSE til kynningar: Aðild Íslands að ESB – afstaða BÍ og Mótun framtíðarstefnu í landbúnaðarmálum á Íslandi.
Óformleg ósk frá nýstofnuðu búvélasafni í Eyjafjarðarsveit um að BSE tilnefni mann í stjórn. Stjórn telur sér ekki fært að verða við þeirri ósk en líst vel á hugmyndir um stofnun búvélasafns í Eyjafjarðarsveit og óskar aðstandendum velfarnar.
Styrkjamál – Eftirfarandi ákveðið: Samþykkt að miða við að heildarupphæð “smástyrkja” verði allt að 100.000.- á ári. Stærri styrkbeiðnir og beiðnir frá einstaklingum skal skilað skriflega og verði lagðar fyrir stjórn.
Aðalfundur
Hvatningarverðlaun. Samþykkt að veita Syðri-Haga á Árskógsströnd verðlaunin að þessu sinni fyrir framleiðslu á sauðamjólk. Verðlaunafé verði 75.000.- auk verðlaunagrips til eignar.
Sauðfjárræktarverðlaun. Ráðunautar gera að tillögu sinni (skv. reiknireglu) að það verði Stóri-Dunhagi. Stjórn samþykkir það.
Nautgriparæktarverðlaun. Tillaga nautgriparæktarráðunauta er að það verði Vaglir í Eyjafjarðarsveit. Stjórn samþykkir það.
Þá var farið yfir erindi, kosningar og aðra dagsrkárliði.
Ársreikningur BSE
Hólmgrímur Bjarnason endurskoðandi kom inn á fundinn og fór yfir ársreikning BSE.
Möðruvellir
Ingvar Björnsson kom inn á fund og gerði grein fyrir rekstrinum. Búskapurinn gengur vel og mjólkurframleiðsla er mikil. Útlit er fyrir að framleiðsla verði umfram greiðslumark. Heyframleiðslukostnaður var 19,50 kr./kg þe. Ráðinn verður sumarmaður í 1-2 mánuði en að öðru leyti sjá fastir starfsmenn um reksturinn.
Ársrit
Sigríður Bjarnadóttir kom inn á fund og lagið fram hugmynd um að senda ársrit til þeirra sem þess óska í stað þess að dreifa til allra bænda óháð því hvort þeir hafi áhuga á að fá ritið eða ekki. Hugmynd um að auglýsa í FF um að fólk geti pantað eintak í afgreiðslu Búgarðs. Ritið verði vistað á heimasíðu.
Byggðir Eyjafjarðar - staða á því máli: Guðmundur Steindórsson kom inn á fund og kynnti grófa kostnaðaráætlun við prentun nýrrar bókar. Miðað við 2000 eintök og 1000 myndir og eitt bindi, ein síða á bújörð. Prentkostnaður áætlaður 8,2 millj. eða tvö bindi á 10,9 millj. Ákveðið að leggja fram tillögu á aðalfundi um að farið verði í útgáfu.
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 15:30
VS.