Búgarður

521. stjórnarfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar haldinn í Búgarði 22. febrúar kl. 11:00. Mættir eru Árni Arnsteinsson, Birgir H. Arason varamaður ,

521. stjórnarfundur BSE 2011

521. stjórnarfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar haldinn í Búgarði 22. febrúar kl. 11:00. Mættir eru Árni Arnsteinsson, Birgir H. Arason varamaður , Guðmundur Bjarnason, Sigurgeir B. Hreinsson og Helgi Þór Helgason auk framkvæmdastjóra. Þórainn Pétursson boðaði forföll.

Fjármunir BSE
Framkvæmdastjóra falið að skoða með kaup í ríkistryggðum sjóðum fyrir allt að 7 milljónir.

Reikningar fyrir Bókvís ehf.
Í stjórn eru Sigurgeir Hreinsson, Svana Halldórsdóttir og Þórarinn Pétursson og til vara Helgi Þór Helgason og Guðmundur Bjarnason.  Jón Hlynur Sigurðsson kynnti reikninga Bókvís ehf. fyrir árið 2010. Tekjur eru 26 milljónir sem er um 0,7 milljónum hærri tekjur en 2009. Afkoma er rétt við núllið eða um 18 þúsund krónur í hagnað sem er nokkur viðsnúningur en tap var á starfseminni 2009 kr. 1.445 þús. Tímagjald er kr. 5.750.- auk vsk. Nú eru um 80 bændur í vsk uppgjöri og um 20-30 að auk í lokauppgjöri. Þá eru um 20 fyrirtæki í vsk uppgjöri.Ýmis félög, fyrirtæki og stofnanir alls um 40. Rætt um að kynna fyrirtækið betur og reyna að ná inn fleiri viðskiptavinum. Æskilegt að ná fleiri aðilum sem eru í tveggja mánaða skilum. Markmiðið er að Bókvís ehf. skili einni milljón í hagnað 2011.

Byggðir Eyjafjarðar. Nú er búið að skipa undirbúningsnefnd. Í henni eru Guðmundur Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson, Valdimar Gunnarsson.

Aðalfundur BSE. Ákveðið að halda fundinn miðvikudaginn 13. apríl í Hlíðarbæ. Rætt um hvern/hverja ætti að fá með erindi og verðlaunaveitingar. 

Einar Ófeigur Björnsson formaður BSNÞ og Jón Benediktsson formaður BSSÞ mættu  kl. 12:30

Ólafur Jónsson Héraðsdýralæknir MAST, Bára Heimisdóttir eftirlitsdýralæknir MAST og Alfreð Schiöth frá Heilbrigðiseftirtilit Norðurlandi eystra komu inn á fund til að kynna merkingarreglugerð og nýjar reglur um urðun gripa.

Ástæða þess að þau voru boðuð eru áhyggjur bænda af þessum málefnum. En verið er að herða ýmsar reglugerðir varðandi þessa málaflokka.

Heimasíða Búgarðs
Stjórn samþykkir að kaupa uppsetningu á nýrri heimasíðu Búgarðs.

Að lokum var farið yfir rekstur Búgarðs og Möðruvalla ehf.

Fundi slitið um 15:30

VS.

Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478