519. stjórnarfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar haldinn í Búgarði 23. september 2010 kl. 11:00. Mættir eru: Guðmundur Bjarnason, Helgi Þór Helgason, Árni Arnsteinsson, Sigurgeir Hreinsson og Þórarinn Pétursson auk Vignis Sigurðssonar framkvæmdastjóra.
- Fundargerð síðasta fundar nr. 518 samþykkt.
- Rætt um samstarfssamning við BSSÞ og BSNÞ um ráðgjafaþjónustu. Samþykkt að Sigurgeir hafi umboð til að semja við Þingeyinga í samræmi við tillögu aðalfundar og lagt til að hann hafi samband við formenn til að koma viðræðum af stað sem fyrst.
- Rætt um hugsanlega bókaútgáfu á Byggðum Eyjafjarðar. Ákveðið að halda áfram undirbúningsvinnu og kanna hvort möguleiki er á samstarfsaðilum. Einnig þarf að huga að því að skipa ritnefnd ef af þessu verður.
- Bréf frá Guðnýju Sverrisdóttur sveitarstjóra Grýtubakkahrepps þar sem óskað er eftir fyrir hönd Hörgársveitar, Eyjafjarðarsveitar, Svalbarsstrandarhrepps og Grýtubakkahrepps að tilnefna í gróðurverndarnefnd. Samþykkt að tilnefna Sigríði Bjarnadóttur Hólsgerði, Þórarinn Pétursson Grýtubakka og Róbert Fanndal Jósavinsson Litla-Dunhaga og til vara: Valgerði Jónsdóttur Espihóli, Ólöfu Hörpu Jósefsdóttur Þrastarhóli og Stefán Tryggvason Þórisstöðum.
- Jónas Halldórsson Sveinbjarnargerði sendi béf til Búnaðarsambands Eyjafjarðar þar sem óskað er eftir umsögn um hugmyndir hans að stofnun Búnaðar- og búháttasafns í Sveinbjarnargerði. Eftirfarandi bókun samþykkt: Stjórn Búnaðarsambands Eyjafjarðar líst vel á hugmyndir um stofnun Búnaðar- og búháttasafns í Sveinbjarnargerði og óskar Jónasi Halldórssyni og öðrum stofnaðilum velfarnar við að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd.
Jón Benediktsson formaður BSSÞ og Einar Ófeigur Björnsson formaður BSNÞ koma inn á fund.
- Farið yfir rekstur Búgarðs. Líklegt að skerðingar verði á opinberum framlögum. Rætt um hugsanlega tekjumöguleika og hvar megi helst skera niður komi til þess að tekjur minnki. Ýmsir möguleikar ræddir. Hugmynd kom fram um að rukka fyrir búnaðarfélagsfundi og aðra fundi sem fara fram á kvöldin og um helgar þar sem óskað er eftir ráðunautum. Ákveðið að innheimta kr. 7.500 án vsk. fyrir kvöld- og helgarfundi.
Fundi slitið kl. 14:00
VS