Búgarður

518. stjórnarfundur BSE haldinn 27. apríl 2010. Mættir eru: Sigurgeir Hreinsson, Guðmundur Bjarnason, Helgi Þór Helgason, Þórarinn Pétursson, Árni

518. stjórnarfundur BSE 27. apríl 2010

518. stjórnarfundur BSE haldinn 27. apríl 2010. Mættir eru: Sigurgeir Hreinsson, Guðmundur Bjarnason, Helgi Þór Helgason, Þórarinn Pétursson, Árni Arnsteinsson auk Vignis Sigurðssonar framkvæmdastjóra. Fundurinn hófst kl. 11:00.

Mál á síðasta aðalfundi:

A. “Hugað verði að útgáfu á Byggðum Eyjafjarðar líkt og gert var 1990”. Ákveðið að vinna kostnaðaráætlun fyrir útgáfu og ákveða á næsta stjórnarfundi hvort ráðist verði í verkið. Jafnframt verði skoðað hvernig verkið yrði fjármagnað.

B. “Samstarf við BSSÞ og BSNÞ um ráðgjafaþjónustu”  og “skoða sameiningu búnaðarsambandanna á Norðausturlandi” stjórn mun fylgja þessu eftir

C. “Um búnaðarlagasamning”  hefur komið fram í Bændablaðinu. Framkvæmdastjóra falið að senda þessa ályktun í Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og Fjármálaráðuneytið.

D. “Gjaldskrá vegna sæðinga” Ákveðið að ný gjaldskrá taki gildi 1. maí. Auglýsa breytinguna í næsta FF.

E. “Ályktun um gjaldtöku ráðgjafaþjónustunnar” í vinnslu.

F. “Fjárhagsáætlun BSE” lögð fram.

Einar Ófeigur Björnsson formaður BSNÞ og Jón Benediktsson formaður BSSÞ komu á fundinn.

Mál frá Búnaðarþing sent til Búgarðs Ráðgjafaþjónustu:

Ályktun um lög um búfjárhald. Lagt fram til kynningar.

  1. Ályktun um tímasetningu Búnaðarþings. Lagt fram til kynningar.
  2. Ályktun um endurskipulagningu á ráðgjafaþjónustu í landbúnaði. Lagt fram til kynningar.
  3. Ályktun um endurskoðun búnaðargjalds. Lagt fram til kynningar. Sigurgeir hefur fullt umboð fundarins til að taka þátt í að skipa í nefnd sem á að vinna í þessu máli, verði eftir því leitað.

Undirgöng fyrir búfé.

Auglýst var eftir því að bændur létu vita af því ef þeir teldu mikla þörf á undirgöngum við sinn bæ. Ákveðið að hafa samband við Vegagerðina og óska eftir viðræðum um þessi mál.

Möðruvellir ehf.
Ingvar Björnsson kom inn á fund og fór yfir rekstur Möðruvalla. Reksturinn gengur þokkalega um þessar mundir. Komið er að viðhaldi á gólfi fjóssins og þarf að ræða þau mál við Lbhí.

Fundi slitið um 15:30 / VS

Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478