Ytri úttekt á lambakjötsmati

Ytri úttekt á lambakjötsmati Matvælastofnun birti í vikunni niðurstöður úttektar á kjötmati lambaskrokka sem fram fór á vegum MAST í sauðfjársláturhúsum

Ytri úttekt á lambakjötsmati

Mynd af vef MAST www.mast.is
Mynd af vef MAST www.mast.is

Matvælastofnun birti í vikunni niðurstöður úttektar á kjötmati lambaskrokka sem fram fór á vegum MAST í sauðfjársláturhúsum landsins dagana 17.10.-21.10. 2011. Til verkefnisins voru fengnir tveir erlendir yfirkjötmatsmenn frá Englandi og Noregi en auk þeirra tóku Stefán Vilhjálmsson, fagsviðsstjóri kjötmats og Páll Hjálmarsson, yfirkjötmatsmaður þátt í úttektinni af hálfu Matvælastofnunar. Starfsmaður verkefnisins var Eyþór Einarsson, sauðfjárræktarráðunautur hjá Leiðbeiningarmiðstöðinni á Sauðárkróki.

Ástæður þess að ráðist var í slíka úttekt voru af tvennum toga. Komið höfðu fram efasemdir um að kjötmat hér á landi samkvæmt EUROP-kerfinu væri sambærilegt við túlkun á matsreglunum í nágrannalöndunum. Einkum lutu þær efasemdir að því að kröfur sem gerðar eru til bestu holdfyllingarflokkanna, U og E, væru orðnar of slakar. Einnig hafa verið uppi áhyggjur af meintu mismunandi kjötmati í sláturhúsunum, einkum holdfyllingarmati.

Niðurstaðan er í heild sinni sú að kjötmatið hér er nokkuð sambærilegt við það sem gerist erlendis, en helst má finna að því að R flokkurinn er teygður full mikið niður til móts við O flokkinn og E flokkurinn þarfnast betri skilgreininga.

Nánari grein er gerð fyrir málinu á vef MAST. Einnig er bent á umfjöllun á bls. 4 í Bændablaðinu sem kom út 19. janúar sl.


Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478