09.02.2012

Skeljungur hefur nú birt lista yfir áburðartegundir sem í boði eru og verð á þeim og má finna allar upplýsingar inn á heimasíðu fyrirtækisins. Fram kemur í frétt hjá fyrirtækinu að hækkun á einstaka tegundum sé á bilinu 3-9% nema á N 26+S, sú tegund stendur nánst í stað.
Hér má síðan finna bréf til bænda sem birt er á samhliða öðrum upplýsingum.