Opinn fundur um tillögur sem verða lagðar fyrir komandi Búnaðarþing verður í Sveinbjarnargerði frá kl.11 til 12.30 fimmtudaginn 23. febrúar.
Fyrir þinginu liggja m.a. tillögur um: Eftirlit í landbúnaði, byggðastefnu, orkuverð og dreifingu orku, dýralæknaþjónstu og dýravelferð, leiðbeiningaþjónustu í landbúnaði, fræðslumál í landbúnaði,hugbúnaðarþróun í landbúnaði,endurskoðun á félagskerfi bænda, fyrirkomulag varðandi álagningu og útgreiðslu búnaðargjalds, orkumál landbúnaðarins, ágang villtra dýra og fugla, fjármálaþjónustu og skuldamál í landbúnaði, jöfnun á kostnaði við kúasæðingar og notkun og nýtingarmöguleika ríkisjarða.
Sérstök athygli er vakin á hugmyndum um breytingar á leiðbeiningaþjónustunni, þar sem lagt er til að öll ráðgjafaþjónusta fari undir eina stjórn.
Búnaðarþingsfulltrúar.