Norðlenska komið með útflutningsleyfi fyrir allt kjöt á Evrópumarkað

Norðlenska komið með útflutningsleyfi fyrir allt kjöt á Evrópumarkað Norðlenska er fyrsta kjötvinnslan á Íslandi sem fær útflutningsleyfi fyrir allar

Norðlenska komið með útflutningsleyfi fyrir allt kjöt á Evrópumarkað

Norðlenska er fyrsta kjötvinnslan á Íslandi sem fær útflutningsleyfi fyrir allar tegundir kjötvara til allra landa Evrópu. Leyfið fékkst í morgun og strax eftir helgi verður sendur þorramatur til Íslendinga á hinum Norðurlöndunum sem bíða þess lostætis með óþreyju! Fram að þessu hefur þurft sérstakt leyfi til að senda þorramat utan, þar með talinn súrmatinn góða, og víst að margir kætast vegna þess að nú verður einfaldara að koma þessari vinsælu vöru til ættingja og vina erlendis.

Nánari upplýsingar eru á vef Norðlenska.


Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478