Kadmíummálið -staðreyndir í stað fréttafárs

Kadmíummálið -staðreyndir í stað fréttafárs Í síðastliðnum desember kom út eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar með áburði fyrir árið 2011. Í ljós kom að

Kadmíummálið -staðreyndir í stað fréttafárs

Í síðastliðnum desember kom út eftirlitsskýrsla Matvælastofnunar með áburði fyrir árið 2011. Í ljós kom að stofnunin hafði mælt þungmálminn Kadmíum (Cd) yfir leyfðum mörkum í 13 sýnum, þar af 11 í áburðinum Spretti frá Skeljungi. Undanfarna daga hefur farið fram mikil  og áköf umræða um málið í fjölmiðlum. Hér á eftir verður málið rakið í hnotskurn með vangaveltum um heilsufarslega hættu.

Skeljungur flytur inn og selur áburð frá framleiðandanum Carrs í Skotlandi. Síðan innflutningur Skeljungs á áburði frá Carrs hófst hefur hann uppfyllt viðmiðunarmörk fyrir kadmíum. Sú breyting varð á við framleiðslu áburðarins síðasta vetur að í stað þess að nota kadmíum-lágan fosfór frá Rússlandi til áburðarframleiðslunnar var notaður kadmíum-ríkur fosfór frá Norður Afríku en þar er unninn gríðarmikill fosfór í áburð um allan heim. Samkvæmt fréttatilkynningu Skeljungs var þetta án vitundar þeirra og kom mælingin þeim í opna skjöldu.

Leyfileg mörk fyrir kadmíum í áburði á Íslandi eru 50 mg á kg fosfórs. Evrópusambandið hefur ekki sett sér slík viðmið en undirbýr nú setningu laga um hámarksinnihald kadmíums í áburði. Í þeim tillögum er gert ráð fyrir að viðmiðið verði 140 mg Cd á kg P sem lækkar á 15 árum í 50 mg Cd á kg P. Einstök lönd hafa í einhverjum tilvikum sett hámarksviðmið og t.d miða Finnar við 50 mg/kg P, líkt og gert er hér á landi.

Eftirlit Matvælastofnunar með áburði fer þannig fram að við innflutning er tekið sýni af vörunni til að staðfesta vörulýsingu innflutningsaðila. Hafi áburðartegundin verið flutt inn áður og uppfyllt öll skilyrði eru ekki tekin sýni fyrr en sendingin berst til landsins að vori og 6-8 vikur tekur að fá niðurstöður. Ef áburðurinn stenst ekki gerðar kröfur hefur innflytjandi rétt til að sannprófa niðurstöðuna með efnagreiningu þannig að þegar verkferlum lýkur er áburðurinn í flestum tilfellum kominn á tún og akra.

Í vor kom í ljós að 11 áburðartegundir af 13 frá Skeljungi reyndust innihalda of hátt magn kadmíums í fosfór. Hæst var innihaldið í tegundinni Sprettur 26-13 eða 159 mg Cd pr kg fosfórs. Hvaða þýðingu hefur þetta fyrir upptöku plantna og áhrif á afurðir og heilsu manna og dýra?

Samkvæmt sænskum rannsóknum á upptöku korns (hveiti) á kadmíum var upptaka plantnanna um 10% af aðgengilegu kadmíum í áburðarlausn. Þar af var um 75% bundið í rótum en 25% í blöðum. Hæst mældist kadmíum 150 mg Cd í kg P í Spretti 26-13. Miðað við hefðbundinn túnskammt (kornskammt) af fosfór sem er 20 kg á hektara, hafa verið borin á um 3,2 grömm af Kadmíum (3.200 mg) Ef við gefum okkur að gras/korn hafi tekið upp tíunda hluta þess og þar af 25% í ofanjarðarhluta þá samsvarar það 80 mg á hektara. Í kornakri er hlutfall kornsins miðað við hálm ca 50% og meðaluppskera um 4,0 tonn af korni. Þetta þýðir að gera má ráð fyrir að í tonni af korni geti hugsanlega verið 10 mg af Cd sem samsvarar 10 míkrógrömmum í kg. Aðþjóðaheilbrigðisstofnunin mælir með því að neysla á Cd sé ekki meiri en 60 míkrógrömm á dag hjá fullorðnum einstakling. Til að ná þeim mörkum þyrfti því að neyta 6 kílóa á dag af korni ábornu með ofangreindum áburði. Það samsvarar 8 Cheeriospökkum.

Líffræði korntegunda og túngrasa er mjög svipuð og gera má ráð fyrir að upptaka túngrasa sé áþekk. Algeng uppskera af íslensku túni í góðri rækt er um 5 tonn af þurrefni og upptakan gæti verið 64 mg á tonn. Þetta er u.þ.b. það hey sem þarf fyrir meðalkúna á ári. Hún myndi því samkvæmt þessu innbyrða 64 mg af Kadmíum úr þessu heyi. Þetta samsvarar um 0,1 mg á kg líkamsþyngd kýrinnar . Stærsti hlutinn myndi skila sér í mykju og það litla sem hún tæki upp myndi setjast í lifur og nýru. Útilokað er að kadmíum gæti mengað kjöt eða mjólk.

Niðurstaða:
Umræða um hugsanlega mengun í landbúnaðarvörum af völdum kadmíums í áburði í vor er algjörlega út í hött!

Ingvar Björnsson
Héraðsráðunautur í jarðrækt
Búgarði, Akureyri


Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478