HUPPU námskeið

HUPPU námskeið Ákveðið hefur verið - ef næg þátttaka fæst - að halda námskeið í notkun skýrsluhaldskerfisins HUPPU, á Húsavík fimmtudaginn 2. febrúar og á

HUPPU námskeið

Huppa kallar!
Huppa kallar!

Ákveðið hefur verið - ef næg þátttaka fæst - að halda námskeið í notkun skýrsluhaldskerfisins HUPPU, á Húsavík fimmtudaginn 2. febrúar og á Akureyri föstudaginn 3. febrúar.  Námskeið stendur frá 10:00 til 17:00.  

Á námskeiðinu verður farið yfir hina fjölþættu notkunarmöguleika sem til staðar eru í HUPPU.  Farið verður í helstu skýrslur, svo sem frjósemiskýrslu búsins, uppgjör og lykiltölur.  Litið verður á þær upplýsingar sem aðgengilegar eru um gripi búsins og hvernig lesa má úr þessum upplýsingum og nota þær til aðstoðar við skipulag fóðrunar, sæðinga, gerð kynbótaáætlana o.fl.  Farið verður yfir hvernig hægt er að taka út gögn um gripi í exel og innlestur heilsufarsupplýsingar úr HEILSU verður kynntur.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur geti unnið í tölvu á námskeiðinu og unnið með eigin bú á meðan á námskeiðinu stendur.  Námskeiðin fara fram í tölvuverum þannig að þau eru að hluta til verkleg.  Kennari er Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir nautgriparæktarráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands.  Æskilegur fjöldi er 10 til 15 manns á hvoru námskeiði.  Sérstakt námskeiðsgjald er ekki tekið en greiða þarf fyrir mat og kaffi.

Þátttökutilkynningar skulu berast í síma Búgarðs 460-4477, eða í netfangið gps@bondi.is eigi síðar en föstudaginn 27.janúar n.k.

Bændasamtök Íslands og Búgarður

 


Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478