Góður dagur með Guðlaugi Antonssyni hrossaræktarráðunaut

Góður dagur með Guðlaugi Antonssyni hrossaræktarráðunaut Búgarður - ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi stóð fyrir degi með hrossaræktarráðunaut á Akureyri

Góður dagur með Guðlaugi Antonssyni hrossaræktarráðunaut

 

Búgarður - ráðgjafaþjónusta á Norðausturlandi stóð fyrir degi með hrossaræktarráðunaut á Akureyri sl. föstudag. Mikil og góð þátttaka var á þennan viðburð en um  40 manns tóku þátt. Dagskráin hófst kl. 10 og stóð til kl. 17:00. Byrjað á að fara yfir ýmsa þætti  er varða mat á sköpulagi kynbótahrossa. Eftir fyrirlestur og myndasýningu var farið í að byggingardæma 6 hross og gátu þátttakendur borið sínar tölur saman við einkunnir ráðunautsins.  Að sama skapi var tekin fyrir hæfileikadómur og var hrossunum riðið á kynbótavelli Léttis á Akureyri.  Hópurinn lét ekki kalt veður og einstaka hríðarbylji aftra sér frá því að storma út á kynbótavöll til þess að hæfileikadæma en með sama lagi og fyrr voru hæfileikadómar yfirfarnir að dómum loknum yfir kaffisopa og  vínarbrauði.

 Þéttskipað í sæti á degi með hrossaræktarráðunau
Þéttskipað í sæti á degi með hrossaræktarráðunaut

 Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur

Guðlaugur Antonsson hrossaræktarráðunautur

 

Byggingadómur, Viðar Bragason á Björgum stillir upp hryssu.

 Arnar Sigfússon og Anna Guðrún Grétarsdóttir í Fornhaga spá í spilin.

Arnar Sigfússon og Anna Guðrún Grétarsdóttir í Fornhaga spá í spilin.


Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478