
Aðalfundir kúabænda á svæðinu voru haldnir í sl. viku. Þingeyingar riðu á vaðið og héldu aðalfund FÞK að Breiðumýri 14. febrúar. Eyfirðingar héldu aðalfund FEK í Hlíðarbæ daginn eftir, 15. febrúar.
Á fundinum í Þingeyjarsýslu gekk Sif Jónsdóttir Laxamýri úr stjórn eftir að hafa lokið sínu starfstímabili. Ný inn í stjórn í hennar stað var kosin Jóna Björg Hlöðversdóttir, Björgum. Fyrir sitja í stjórnínni Friðgeir Sigtryggsson Breiðumýri og Steinþór Heiðarsson Ytri Tungu. Formaður félagsins er sem fyrr Friðgeir. Erindi á fundinum fluttu Baldur H. Benjamínsson framkvæmdastjóri LK auk Helga H. Haukssonar og Gunnfríðar E. Hreiðarsdóttur sem kynntu málefni/viðhorf ungra bænda.
Á fundinum í Eyjafirði voru endurkjörin í stjórnina Trausti Þórisson Hofsá og Elín Stefánsdóttir Fellshlíð. Kristín Hermannsdóttir Merkigili gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og kom Kristinn Ásmundsson Höfða nýr inn í stjórn. Fyrir í stjórn eru Anna Jónsdóttir Svalbarði og Bragi Konráðsson Lönguhlíð. Trausti var endurkjörinn formaður félagsins. Grétar H. Harðarson flutti erindi um júgurheilbrigði og Baldur H. Benjamínsson um málefni LK.
Eyfirðingar samþykktu tillögur sem lúta að starfsumhverfi nautgripabóndans, s.s. um starfshætti Matvælastofnunar og fyrirkomulag eftirlits, merkingar afurðanna, eldsneytisverð, markaðsdaga greiðslumarks mjólkur, innflutning á kjöti og innflutning á gæludýrum án sóttkvíarskilyrða. Þingeyingar vinna að tillögum sínum og hittast síðar til að fara í gegnum þær.
Fram kom á FÞK fundinum að Sveinbjörn Sigurðsson Búvöllum ætlaði ekki að bjóða sig fram til endurkjörs inn í stjórn LK á væntanlegum aðalfundi þar í mars. Trausti tilkynnti hins vegar á FEK fundinum að hann hyggist bjóða sig fram í stjórn LK.