
Námskeið í sauðfjárræktarkerfinu Fjarvis.is verður haldið á Akureyri 2. feb. 2012 og Húsavík 3. feb. 2012 nk. ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið er samstarf Landbúnaðarháskóla Íslands, LbhÍ, Bændasamtaka Íslands, BÍ, og Búgarðs. Námskeiðið er einkum ætlað sauðfjárbændum sem eru þátttakendur í skýrsluhaldi í sauðfjárrækt. Hámark þátttakanda er 12.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi einhverja reynslu í færslu skýrsluhalds og hafi með sér skýrsluhaldsgögn til að vinna með á námskeiðinu. Farið verður í allar helstu aðgerðir sem Fjarvis.is býður upp á fyrir skýrsluhaldara, m.a. skráningarþætti, fjárleitir og skýrslur. Á námskeiðinu er svarað spurningum eins og: Hvernig er staðið að skilum á skýrsluhaldi að vori og hausti? Hvað er kynbótamat gripa? Hvernig er skráð kaup og sala gripa? Hver er niðurstaða afkvæmarannsóknar? Hvernig er æviferill ærinnar? Hvernig eru sláturupplýsingar lesnar beint frá sláturhúsum?
Námskeiðið verður frá 10:00-17:00 báða dagana og kennarar verða Jón Baldur Lorange, forstöðumaður tölvudeildar BÍ og ráðunautur frá Búgarði. Skráning fer fram á netfanginu endurmenntun@lbhi.is (nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs þarf að koma fram) eða að hafa samband við LbhÍ í síma 433-5000. Námskeiðsgjaldið er 14.900 krónur (minnt er á Starfsmenntasjóð bænda, sjá á vefnum www.bondi.is) en staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2.800kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590.