
Nú er lokið fyrstu tveim tímunum í Sauðfjárræktarskóla Búgarðs þátttaka er mjög góð, liðlega 70 manns hafa sótt skólann, kennt hefur verið á þremur stöðum, Akureyri, Ýdölum og Kópaskeri.
Fyrsti tíminn var í lok nóvember og var þá fjallað m.a. um fóðrun sauðfjár til frjósemi og farið aðeins yfir notkun á fjárvis.is. Annar tíminn var 9. og 10. janúar og var Jóhannes Sveinbjörnsson fóðurfræðingar hjá LBHÍ fyrirlesari og ræddi hann m.a. fóðuráætlanir, markmið með fóðuröflun og annað tengd fóðrun sauðfjár.
Næsti tími verður í byrjun febrúar og verður þá farið yfir húsvist sauðfjár og vinnuhagræðinu við hirðingu sauðfjár. Samtals er ráðgert að kennt verði sex sinnum og líkur skólanum í ágúst.
Umsjón með þessum skóla hefur verið á höndum Maríu Svanþrúðar og Sigurðar Þórs, ráðunauta Búgarðs.