29.03.2012
Fyrirhugað er að halda aðalfund BSSÞ fyrir árið 2011 fimmtudaginn 29. mars 2012. Staður, tími og dagskrá verður auglýst nánar síðar. Stjórn BSSÞ hefur ákveðið að á fundinum fari fram kosning Búnaðarþingsfulltrúa fyrir kjörtímabilið 2012-2015. Kjósa skal tvo aðalfulltrúa og tvo til vara.
Félagsmenn geta krafist þess að fram fari almenn kosning og skal sú krafa koma fram eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund. Félagastal BSSÞ liggur frammi á skrifstofu Ráðgjafaþjónustu á Norðausturlandi, Garðarsbraut 5, Húsavík og hjá formanni, Jóni Benediktssyni, Auðnum.