03.04.2012

Stjórn BSE hefur ákveðið að kosning fulltrúa á Búnaðarþing fyrir kjörtímabilið 2013-2015 fari fram á aðalfundi BSE sem fyrirhugað er að halda 3. apríl nk. Tímasetning, staðsetning og dagskrá verður auglýst nánar þegar nær dregur. Félagatal BSE mun liggja frammi í afgreiðslu Búgarðs Óseyri 2 út janúarmánuð. Félagsmenn geta krafist þess að fram fari almenn kosning og skal sú krafa koma fram eigið síðar en 6 vikum fyrir aðalfund.