26.01.2012

Verðskrá Yara áburðar fyrir árið 2012 er komin út, en umboðsaðili er sem fyrr Sláturfélag Suðurlands. Verð á köfnunarefnisáburði hækkar um 4-5 % en á öðrum algengum tegundum um allt að 10%. Ný áburðartegund bætist í vöruframboðið en það er tegundin NPK 15-7-12 sem er mjög rík af fosfór. Tegundin hentar vel á nýræktir, korn, fóðurkál og áburðarfrek tún.
Nánari upplýsingar er að finna á áburðarvef Sláturfélags Suðurlands en tafla með efnainnihaldi og verðum fylgir hér.