Efnagreiningar

Heyefnagreiningar Fóðurefnagreiningar eru mikilvægt hjálpartæki í búskap og forsenda þess að rétt sé staðið að fóðrun gripa til hámarksafurða.  Færst

Efnagreiningar

Heyefnagreiningar

Fóðurefnagreiningar eru mikilvægt hjálpartæki í búskap og forsenda þess að rétt sé staðið að fóðrun gripa til hámarksafurða.  Færst hefur í vöxt að bændur taki heysýni við hirðingu en einnig er hægt að taka sýni af verkuðu heyi, úr hlöðum eða rúllum.

Bændum á svæði Búgarðs gefst kostur á því að skrá sig á heysýnalista og fá þá senda poka og merkimiða vegna hirðingarsýna í upphafi sláttar.  Einnig gefst kostur á því að láta taka borsýni úr rúllum eða hlöðum.

Heyefnagreiningar fara fram í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands.  Skila þarf sýnum í Búgarð en þar eru þau þurrkuð og möluð og send LBHÍ til efnagreiningar.  Niðurstöðunum er síðan skilað  til bænda með viðeigandi leiðbeiningum.

Jarðvegsefnagreiningar

Jarðvegssýnataka fer fram á starfssvæði Búgarðs í september og október. Árið 2006 lauk skipulagðri jarðvegssýnatöku á Norðausturlandi og ákveðið var að gera hlé á sýnatöku áður en hafist verður handa við næstu umferð.

Bændur sem óska eftir jarðvegssýnatöku geta pantað hana á skrifstofu Búgarðs í síma 460-4477 eða netfanginu ib(hjá)bugardur.is

Jarðvegssýnin eru meðhöndluð og efnagreind á rannsóknarstofu Búgarðs eða send til greiningar á Hvanneyri.

Svæði

Búgarður - Ráðgjafarþjónusta á norðausturlandi  |  Óseyri 2, 603 Akureyri  |  Garðarsbraut 5, 641 Húsavík  |  Sími 460-4477  |  Fax 460-4478