Búgarður ráðgjafaþjónusta býður uppá DNA-sýnatöku úr hrossum til staðfesingar á ætterni. Starfsmaður Búgarðs annast sýnatökuna og sendir sýnið til greiningar hjá Matís ohf./Prokaria. Að greiningu lokinni eru niðurstöður skráðar í Worldfeng. Að öllu jöfnu eiga niðurstöður að liggja fyrir inna tveggja mánaða frá því sýni var tekið. Hægt er að óska eftir forgangssýni og er þá innheimt aukagjald fyrir það. Niðurstaða á þá að liggja fyrir innan 10 daga.
Mælt er með að taka DNA-sýni úr kynbótahrossum. Skylda er að taka DNA-sýni úr öllum stöðhestum sem koma til kynbótadóms sem og foreldrum þeirra.
Best er að panta sýnatöku með því að hafa samband við Vigni Sigurðsson annað hvort á netfangið vignir@bugardur.is eða í síma 460-4477.
Verðskrá (15.04.2011)
Greining á sýni 5.200.-
Komugjald 2.100.-
Tímagjald 5.500.-
Greining á forgangssýni 8.500.-
Öll verð eru án vsk.